| Í kvöld fengum við /sys/tur okkar fyrsta fyrirlesara annarinnar. Við vorum svo heppnar að fá Rakel Sigurðardóttur í heimsókn. Rakel er Chief Development Officer hjá Betware og hún sagði /sys/trum frá sér og sinni vinnu og þar á meðal lokaverkefninu sínu við HR sem hún vann fyrir Betware á sínum tíma. Hún ræddi við okkur um atvinnulífið og gaf okkur innsýn inn í hvernig það er að vinna sem hönnuður hugbúnaðar og hvað það er sem atvinnurekendur leitast eftir þegar þeir ráða forritara til starfa. Það var einstaklega skemmtilegt að hlusta á Rakel og við þökkum henni kærlega fyrir komuna og öllum /sys/trum sem mættu fyrir gott kvöld. |
0 Comments
Leave a Reply. |
Flokkar
All
|