Viðburðurinn „Stelpur og tækni“ (Girls in ICT Day) var haldinn hátíðlegur um Evrópu á sumardaginn fyrsta. Haldið verður upp á daginn á Íslandi þann 30. apríl. Þá verður 90 stelpum úr 8. bekk fjögurra grunnskóla boðið í Háskólann í Reykjavík og fjögur tæknifyrirtæki.
Markmiðið með verkefninu er að kynna stelpurnar fyrir ýmsum möguleikum í upplýsingatækni og opna augu þeirra með áhugaverðri dagskrá þar sem þær hitta kvenfyrirmyndir í faginu, fá að spreyta sig á skemmtilegum verkefnum og heimsækja helstu tæknifyrirtæki landsins. Vinnusmiðjur, sem haldnar eru í Háskólanum í Reykjavík, verða í umsjá Skema, /sys/tra og tölvunarfræðideildar HR og eru viðfangsefnin á borð við vefsíðugerð, forritun og gervigreind. Tæknifyrirtækin sem verða heimsótt eru Advania, GreenQloud, Hugsmiðjan og Marorka og munu þau gefa stelpunum góða innsýn í fyrirtækin og þau tækifæri sem stelpum bjóðast að loknu tækninámi. Að verkefninu standa Háskólinn í Reykjavík, Ský, Samtök iðnaðarins, GreenQloud, Skema og /sys/tur en verkefnið hefur hlotið styrk úr Framkvæmdasjóði jafnréttismála.
Viðburður í Evrópu
„Girls in ICT Day“ er haldinn víða um heim og styrktur af ITU (International Telecommunication Union) og Evrópusambandinu í tengslum við Digital Agenda-áætlunina. Verkefnið er hér á landi að hluta til styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem hluti af jafnréttisáætlun stjórnvalda. Dagurinn mun auk þess marka upphaf að samstarfi við ECWT– The European Centre for Women and Technology en HR mun stýra starfsemi samtakanna á Íslandi. Er það von HR að þessi dagur verði árlegur viðburður og muni skila fleiri stelpum í upplýsingatækninám í framtíðinni.
/sys/turnar Áslaug Eiríksdóttir og Ingibjörg Ósk Jónsdóttir sögðu frá viðburðinum í þættinum „Sirrý á sunnudagsmorgni“ á Rás 2 í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið hér. Þær byrja 96:48 mínútu.