Í tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík eru 19% nemenda konur. Þeim hefur fjölgað töluvert undanfarin ár enda fór háskólinn í markvisst starf að sækja stelpur í þetta nám. Í nýkjörinni stjórn nemendafélags tölvunarfræði-deildarinnar eru fjórar konur og tveir karlmenn.
„Stelpur eru að koma meira og meira inn í þessi fög, sem er mjög skemmtilegt,“ segir Erla Harðardóttir nýkjörinn formaður nemendafélagsins Tvíundar, sem er félag nema í tölvunarfræðideild við HR.
Hrönn Róbertsdóttir er upplýsingafulltrúi félagsins og Fanney Hrund Jónasdóttir gjaldkeri, en auk þeirra eru þau Liljar Már Þorbjörnsson, Svava Dögg Björgvinsdóttir og Grímur Kristjánsson í stjórn Tvíundar.