| Hin árlega UTmessa var haldin í Hörpu um helgina og /sys/tur létu sig ekki vanta. Um 10.000 manns á öllum aldri komu á laugardeginum til að sjá allt það skemmtilega sem var í boði á sýningarbásunum og gleðin leyndi sér ekki. Yfir laugardaginn sýndu /sys/tur gestum inn í tölvur af ýmsum gerðum og leyfðu þeim að fikta í þeim og taka þær í sundur og setja þær saman að vild. Gestirnir fengu að læra um innviði tölvunnar og öllum á aldrinum 15-25 ára bauðst að skrá sig í keppni í tölvutætingi. /sys/tur héldu í samvinnu við Promennt og Háskólann í Reykjavík keppnina í tölvutætingi sem var gífurlega vinsæl. Tvær stelpur og tveir strákar tóku þátt í keppninni og þau stóðu sig öll eins og hetjur. Einar Helgi Guðmundsson stóð uppi sem sigurvergari en það tók hann aðeins 10 mínútur að setja saman tölvu úr bútum og fá gögn af harða disknum yfir á tölvuskjáinn. Í verðlaun fékk hann námskeið í tölvuviðgerðum hjá Promennt að andvirði 129.000 krónur. /sys/tur þakka Promennt og Háskólanum í Reykjavík fyrir frábært samstarf og öllum þeim sem komu að UT messunni fyrir frábæra helgi. |
1 Comment
Enn eitt frábært /sys/tra kvöld er að baki, en í þetta sinn komu til okkar þær Berglind Ósk Bergsdóttir og Klara Rún Kjartansdóttir.
Þær eiga það sameiginlegt að vera báðar bráðsnjallir app forritarar, en hún Berglind er android forritari hjá Plain Vanilla og Klara er iOS forritari sem hefur unnið sjálstætt í að forrita kennsluleiki fyrir börn. Berglind er eina konan í android forritunarteymi Plain Vanilla og hefur unnið þar síðan 2012, en hún útskrifaðist sem tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 2010. Klara stofnaði sitt eigið fyrirtæki árið 2012 sem heitir 27 (www.20seven.net) og hefur með því forritað sjálf þó nokkuð mörg öpp, meðal annars Explorer Kids, Brick Bucket, Lærum og leikum með hljóðin, Kids Sound Lab og Froskaleikir. Hún útskrifaðist úr Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig kennt áfanga þar. Mætingin var frábær og spurningaflæðið var rosalega mikið. Anna Laufey, nemandi í HR og fjölmiðlafulltrúi /sys/tra, sagði síðan stelpunum frá því hvernig er hægt að nálgast kennslu í app forritun. Einnig sagði hún frá lokaverkefninu sínu sem var android app til þess að hjálpa sykursjúkum að reikna út insúlínsmagn fyrir hverja máltíð. Við viljum þakka Berglindi og Klöru sérstaklega fyrir að mæta, sem og öllum flottu stelpunum sem mættu. /sys/tur áttu frábært kvöld í boði Promennt í Skeifunni í gær þar sem þau leyfðu okkur að koma og tæta í sundur og setja aftur saman tölvur, lyklaborð og fleira . Við erum mjög þakklát fyrir góðar móttökur.
Mætingin var góð og við skemmtum okkur allar mjög vel. Við skoðuðum innihald borðtölvunnar og skoðuðum hvern vélbúnað fyrir sig sem var bæði skemmtilegt og áhugavert. Promennt gagnaðist einnig á þessu skemmtilega kvöldi þar sem lok á kælikremi fannst í einni tölvunni, sem fékk þó ekki að fara aftur inn í tölvuna. Við eigum von á að halda annan tölvutæting aftur í komandi framtíð. Við viljum þakka Promennt kærlega fyrir okkur. Til að læra meira um Promennt er hægt að fara inná http://www.promennt.is/. Í gær 3. nóvember komu til okkar nokkrar konur að tala við /sys/tur. Þær kenna allar í Háskólanum í Reykjavík og eru frábærar fyrirmyndir stelpna á akademísku sviði. Það var mjög gaman að hlusta á þær segja frá sér og sínum reynslum og alveg frábært að fá að kynnast þessum mögnuðu konum.
/sys/tur vilja þakka þeim kærlega fyrir að koma. Í gær héldu /sys/tur forritunarkvöld fyrir menntaskólastelpur í tilefni að Europe Code Week. Stelpurnar fengu að læra að forrita í Java og stóðu sig allar einstaklega vel. Mætingin var mjög góð og kennslan gekk mjög vel og allir virtust vera ánægðir með kvöldið. Viðburðurinn var haldinn í samstarfi með Skema og tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
CodeWeek var haldin vikuna 11. - 17. Oktober útum alla Evrópu með hundruði viðburði fyrir byrjendur í forritun þar sem allir geta fengið að læra eitthvað nýtt og skemmtilegt. /Sys/tur vilja þakka öllum sem komu að forritunarkvöldinu og sérstaklega kláru og skemmtilegu stelpunum sem mættu og forrituðu með okkur.
Í gærkvöldi var haldið nýnemakvöld /sys/tra þar sem nýjustu /sys/turnar fengu kynningu á félaginu. Það var mjög góð mæting en í hátt að 40 stelpur mættu þar sem flestar voru á fyrsta ári. Eftir stutta og hressa kynningu var boðið upp á gómsætar kökur og mikið var spjallað og hlegið.
Við eigum von á mjög góðu ári fyrir /sys/tur og hlökkum mikið til að nördast saman með bæði nýjum og eldri /sys/trum. Helga Guðmundsdóttir, meistaranemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, hefur fyrst Íslendinga hlotið hinn eftirsótta Google-styrk.
Styrkurinn er til minningar um Anitu Borg sem barðist fyrir auknum hlut kvenna í tölvunar- og tæknifræðum og eiga kvenkyns nemendur í þeim greinum kost á að hljóta styrkinn. Fjörutíu konur frá Evrópu, Afríku og Mið-Austurlöndum hlutu styrk þetta árið og er Helga ein þeirra. Styrkurinn er rúmar milljón krónur og er styrkþegum boðið í heimsókn á skrifstofur Google í Sviss. Mikill fjöldi sækir um styrkinn en leitað er eftir góðum námsárangri og leiðtogahæfileikum. „Stelpur og tækni“ - dagurinn heppnaðist vonum framar og stefnt er að því að gera hann að enn stærri viðburð á næsta ári. Mikið var fjallað um daginn í fjölmiðlum. Tekið var viðtal við Auði Ölfu Ólafsdóttur frá GreenQloud og Ingibjörgu Ósk Jónsdóttur frá /sys/trum í Síðdegisútvarpi Rásar 2. Hlustið hér. Einnig var fjallað um daginn og tekin viðtöl við Kristine Helen Falgren, frá Háskólanum í Reykjavík, og Ingibjörgu Ósk Jónsdóttur, frá /sys/trum, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Sjá hér á 14:24 mínútu.
Viðburðurinn „Stelpur og tækni“ (Girls in ICT Day) var haldinn hátíðlegur um Evrópu á sumardaginn fyrsta. Haldið verður upp á daginn á Íslandi þann 30. apríl. Þá verður 90 stelpum úr 8. bekk fjögurra grunnskóla boðið í Háskólann í Reykjavík og fjögur tæknifyrirtæki.
Markmiðið með verkefninu er að kynna stelpurnar fyrir ýmsum möguleikum í upplýsingatækni og opna augu þeirra með áhugaverðri dagskrá þar sem þær hitta kvenfyrirmyndir í faginu, fá að spreyta sig á skemmtilegum verkefnum og heimsækja helstu tæknifyrirtæki landsins. Vinnusmiðjur, sem haldnar eru í Háskólanum í Reykjavík, verða í umsjá Skema, /sys/tra og tölvunarfræðideildar HR og eru viðfangsefnin á borð við vefsíðugerð, forritun og gervigreind. Tæknifyrirtækin sem verða heimsótt eru Advania, GreenQloud, Hugsmiðjan og Marorka og munu þau gefa stelpunum góða innsýn í fyrirtækin og þau tækifæri sem stelpum bjóðast að loknu tækninámi. Að verkefninu standa Háskólinn í Reykjavík, Ský, Samtök iðnaðarins, GreenQloud, Skema og /sys/tur en verkefnið hefur hlotið styrk úr Framkvæmdasjóði jafnréttismála. Viðburður í Evrópu „Girls in ICT Day“ er haldinn víða um heim og styrktur af ITU (International Telecommunication Union) og Evrópusambandinu í tengslum við Digital Agenda-áætlunina. Verkefnið er hér á landi að hluta til styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem hluti af jafnréttisáætlun stjórnvalda. Dagurinn mun auk þess marka upphaf að samstarfi við ECWT– The European Centre for Women and Technology en HR mun stýra starfsemi samtakanna á Íslandi. Er það von HR að þessi dagur verði árlegur viðburður og muni skila fleiri stelpum í upplýsingatækninám í framtíðinni. /sys/turnar Áslaug Eiríksdóttir og Ingibjörg Ósk Jónsdóttir sögðu frá viðburðinum í þættinum „Sirrý á sunnudagsmorgni“ á Rás 2 í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið hér. Þær byrja 96:48 mínútu. |
Flokkar
All
|